hugrenningar kennaranemans
11.02.2009 16:10:33 / annajoh

brjóttu heilann

Slide 1

Þrír menn komu á hótel og versluðu gistingu í þriggja manna herbergi.

Hver borgaði 10.000 kr. Samtals er það 30.000 kr.

Síðar sá hótelstjórinn að það var of mikið og sendi þjóninn upp með 5000 kr. til baka.

Á leiðinni upp sér þjónninn að hann getur ekki skipt þessu jafnt á milli þeirra svo hann stingur 2000 kr. í vasann og lætur mennina hafa hvern sinn 1000 kr.

Þá hafa mennirnir samtals greitt 9000 kr. hver fyrir herbergið sem gerir = 27.000 kr. er það ekki?

Þjónninn er með 2000 kr. í vasanum og það mun þá vera samtals 29.000 kr. ef rétt er reiknað eða hvað?

HVAR ER 1000 KR.?


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.12.2008 23:35:29 / annajoh

jóla?

til að gera þetta soldið jólalegt hjá mér þá syng ég meiri próf meiri próf meiri próf...
:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2008 22:14:29 / annajoh

gleðilega...

...aðventu 8)
knús,
a.

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.11.2008 23:06:54 / annajoh

Lífið í hnotskurn

Þetta fékk ég sent frá góðri vinkonu 8)

Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og
einn banana til að fá kalíum

Líka eina appelsínu, útaf c-vítamíninu og einn bolla af grænu te án
sykurs, til að forðast sykursýki. Svo má ekki gleyma lýsinu sem er
náttúrulega allra meina bót.

Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem
tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það)
Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum sem
enginn skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón á dag
mun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar.

Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og
drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi.
Og annað hvítt fyrir taugakerfið.
Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera.
Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red
Bull ísskápnum til að drekka daginn eftir, nema náttúrulega ef þú ert þá
búinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því.
Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú kúkar
heilli peysu. Það á að borða fjórar til sex máltíðir á dag, hollar,
fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern munnbita hundrað
sinnum.
Með smá útreikningi er ljóst að það tekur þig um fimm klukkustundir á
dag að borða.

Ó, og síðan má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð.

Á eftir jógúrtinu og trefjunum, tannbursta ; á eftir eplinu, tannbursta
; á eftir banananum, tannbursta ...
Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma
tannþræðinum og munnskolinu með tilheyrandi gurgli.
Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín,
því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið, trefjarnar,
tennurnar...

Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm sem
fara í að borða. Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund. Þá áttu þrjár
stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann
daginn.

Samkvæmt könnunum eyðum við þremur stundum daglega í sjónvarp...og ekki
gleyma tölvunum!!! En þú hefur engan tíma í svoeiðis, því daglega áttu að
fá þér a.m.k. hálftíma göngutúr (Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir 15
mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund).

Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf að
vökva þau daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef þú ferð í
frí.

Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð og
eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman.


Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera
frumlegt og skapandi . Þetta tekur sinn tíma!!! Að maður tali nú ekki um
tantra kynlíf!!!
Að öllu framansögðu vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir
hverja máltíð. Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í
sturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?!


Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin á
þessum vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu. Til
dæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig
lítrana tvo af vatni. Þegar þú gengur út úr baðherberginu með
tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt) standandi með
makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á meðan þú
burstar tennurnar.
Var ein hendi laus?

Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!!

Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að
halda) eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann með
jógúrtinu. Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir , sendu þetta þá á
vinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm) um leið og þú tekur inn eitt
hvítlaukshylki sem er svo gott fyrir...
En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann,
bjórinn, fyrri vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef ég
ekki hugmynd um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast á
klósettið.
Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa tannburstanum með mér.

Ef ég er senda þér þetta í annað sinn , er það vegna þess að þrátt
fyrir að fylgja öllum þessum ráðum er ég samt komin með alzheimer.
 
Kveðja,
Anna.

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.11.2008 23:03:29 / annajoh

lítil vs. stór?

það er oftast gott að vera lítil en ekki á tónleikum þar sem fólk þarf að standa. þá er gott að vera stór :!:

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 18:17:06 / annajoh

sushi

ég og eiginmaðurinn bjuggum til sushi í gær.
8)
það heppnaðist bara mjög vel sonna í fyrstu tilraun. nammi namm.
:d
bara svo þið vitið það.
góðar stundir.
a.

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.11.2008 17:27:11 / annajoh

gaman

á þessum tímum þar sem fréttatímar snúast nánast bara um e-ð neikvætt vil ég koma með smá jákvætt fyrir ykkur. 8)

kannski soldið væmið en nóvemberkaktusinn minn er farinn að blómstra og orkídean sem legið hefur í dvala í tæpt ár líka :d

þetta segir manni að lífið heldur áfram þó fjármálaheimurinn sé hruninn :!:

annars er ég að fara búa til sushi.

sjáumst.

ble.
a ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2008 20:55:38 / annajoh

kaldhæðni örlaganna?

sonur minn syngur:
eniga meniga... ég á enga peninga!

:lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 20:59:31 / annajoh

90 kall

ég er á leið til nyc og dollarinn kominn upp úr öllu valdi.
8|
vesen.
:!:

» 5 hafa sagt sína skoðun

02.09.2008 21:33:03 / annajoh

sjæse

ég hélt að ég hefði verið í barnalegum áfanga á síðustu önn... en núna þarf ég að halda skordýri lifandi í þrjár vikur.
hvar endar þetta???
ó mæ...
:P
a.

» 6 hafa sagt sína skoðun

20.08.2008 22:20:02 / annajoh

strákarnir "okkar"

áfram ísland 8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.08.2008 20:09:09 / annajoh

30

nú er mín bara orðin gömul kelling :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 21:19:26 / annajoh

og geri aðrir betur

amma mín og afi eiga 62 ára brúðkaupsafmæli í dag 8)

mér finnst það ógó flott.

a


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.07.2008 21:09:43 / annajoh

sól og sumarfrí

hvað eruð þið að gera í ykkar fríi?

við erum bara að hafa það huggó heima, borða góðan mat, út að leika, fara í sund og hitta fólk.... svo e-ð sé talið upp.

ógó gaman 8)

annars er ég alveg á leiðinni að fara að segja myndir inn á barnaland... úbb.

bæ,
a.


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.06.2008 23:13:24 / annajoh

14

tvær vikur í sumarfrí8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Klukkan
Könnun
ætlið þér til útlanda í sumar?